Eitt mál hefur vakið forvitni mína af værum blundi síðustu daga það eru svefnvenjur skólafélaganna. Ekki það að ég sé að missa svefn yfir þeim, alls ekki. Það er nefnilega þannig að margir sofna uppá hvern einasta dag í skólanum. Að vísu bíður háskólabíó með nýju sætunum uppá kjör aðstæður til svefns, fína mollu og mjúk sæti. Það útskýrir þó ekki hvernig menn geta sofið í gegnum tímana óháð því hver er að lesa yfir þeim. Skiljanlega sofnar fólk þegar herra rólegheit talar í hægðum(ekki þeim hægðum sem þú heldur) sínum um eitthvað sem er svo leiðinlegt að þig langar frekar til þess að lesa tölfræði bókina þína eða horfa á málningu þorna. Það skil ég mæta vel. En hvernig fullorðnir menn sem segjast sofa 8-10 tíma á dag fara að því að sofa af sér tímana er mér á huldu. Sjálfur hef ég yfirleitt ekki verið neinn engill í þessum málum og sofnað á hinum ýmsu stöðum óháð því hvað sé þar í gangi en því hefur ég yfirleitt getað útskýrt með þreytu eða svefnleysi. Þá hef ég það sem fasta reglu að fara úr skónum til þess að koma í veg fyrir svefn í tímum. Því er hins vegar ekki að skipta hjá mínum skólafélögum, Magnúsi og Jóhanni.
Svefnþörf Jóhanns hefur meira að segja keyrt svoleiðis um þverbak að við sáum okkur þann kost vænstan að gera rannsókn á svefnvenjum hans. Hann hefur nú afrekað það að sofna í nánast öllum tímum hvort sem þeir heitir bókhald eða Stærðfræði. Það þykir mér einnig mesta furða að honum virðist nákvæmlega sama um það sem hann missti af, sem reyndar er yfirleitt ekki mikið. Aðspurður segist hann bara þurfa sinn svefn og að ekkert sé óeðlilegt við hans svefnvenjur. „Maður verður nú að sofa“ sagði hann meðal annars í dag. Það er farið að læðast að mér sá grunur að afríska svefnveikin grasseri í skólanum, því Jóhann er nú alls ekki sá eini sem sefur af sér tímana, og að einn daginn muni þessir menn einfaldlega sofna svefninum langa.
Samrannsakandi minn hann Magnús er svo heldur ekki barnanna bestur í þessum málum, því að hann sofnaði meira að segja ofan í rannsóknargögnin okkar mikilvægu í gær. Dass af hræsni í þessu öllu saman hjá kallinum. Honum er nú samt vorkunn þar sem að nánast helmingur nemenda steinsvaf. Þess vegna varð mér hugsað til þess hvort að ég sé sá sem er óeðlilegur að sofa ekki eða hvort að hið óvenjulega sé að sofa? Hvað finnst ykkur sofið þið af ykkur tímana heima, í skólanum eða bara vakið?
Ironman í hugleiðingargír